
ÞOR-ÞEKKING-ÞJÓNUSTA
Það er bara svo ljúft að þykja
vænt um Bláskógabyggð
Þ-listinn í Bláskógabyggð er óháð stjórnmálaafl sem hefur það að markmiði að vinna að samfélags- og framfaramálum í Bláskógabyggð. Þ-listinn hefur starfað bæði í meiri- og minnihluta frá sameiningu sveitarfélaganna árið 2002. Listinn starfaði með meirihluta í sveitarstjórn kjörtímabilin 2002-2006 og 2006-2010 og í minnihluta kjörtímabilin 2010 - 2014, 2014-2018, 2018 - 2022 og er í minnihluta á núverandi kjörtímabili 2022 - 2026 með tvo sveitarstjórnarfulltrúa líkt og síðustu tvö kjörtímabil. Í sveitarstjórnarkosningunum 2022 hlaut Þ – listinn 166 atkvæði af 557 atkvæðum.
Fulltrúar Þ-listans í stjórnum/ ráðum/ nefndum 2022-2026:
Sveitarstjórn:
Anna Greta Ólafsdóttir, Jón Forni Snæbjörnsson, varamenn Andri Snær Ágústsson, Stephanie Langridge.
Skólanefnd:
Hildur Hálfdanadóttir varaformaður skólanefndar, Anna Greta Ólafsdóttir varamaður.
Framkvæmda- og veitunefnd:
Jón Forni Snæbjörnsson, varamaður Axel Sæland.
Umhverfisnefnd:
Kamil Lewandowski, varamaður Jón Forni.
Menningarmálanefnd:
Andri Snær Ágústsson, varamaður Anna Svava Sverrrisdóttir
Æskulýðsnefnd:
Þóra Þöll Meldal Tryggvadóttir, varamaður Anthony Karl Flores
Atvinnu- og ferðamálanefnd:
Stephanie Langride, varamaður Rakel Theódórsdóttir
Anna Greta er varamaður á aðalfund Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Jón Forni er varamaður í Héraðsnefnd Árnesinga
Jón Forni er varamaður í almannavarnanefnd
Anna Greta er fulltrúi á aðalfund SASS og Jón varamaður.
Jón Forni er aðalmaður á aðalfund Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og Anna Greta varamaður.
Anna Greta er fulltrúi á aðalfund Bergrisans og Jón Forni varamaður.